Þá liggur ekki fyrir hvenær hann var lagður inn á sjúkrahús en Ted Goodman, talsmaðurinn, bað fólk um að biðja fyrir Giuliani. Síðasta sumar var hann lagður inn á sjúkrahús vegna brákaðs hryggjarliðs eftir bílslys.
Giuliani var borgarstjóri New York í átta ár en undir lok þess tíma var árásin á tvíburaturnana gerð. Hann þótti standa sig vel í starfi í kjölfar árásarinnar og var af mörgum kallaður „borgarstjóri Bandaríkjanna“.
Árið 2000 bauð hann sig fram til öldungadeildar Bandaríkjanna gegn Hillary Clinton en dró framboð sitt til baka eftir að hann greindist með ristilkrabbamein.
Hann reyndi seinna meir, árið 2007, að verða forseti fyrir Repúblikanaflokkinn en það gekk ekki eftir. Síðar varð hann einkalögmaður og ráðgjafi Donalds Trump, forseta, og leiddi um tíma viðleitni Trumps til að halda völdum þrátt fyrir að hafa tapað forsetakosningunum 2020, gegn Joe Biden.
Sú vinna leiddi til fjölmargra lögsókna gegn Giuliani en ein þeirra leiddi til þess að hann var dæmdur til að greiða mæðgum frá Georgíu 148 milljónir dala í skaðabætur. Þá peninga átti hann ekki til og sótti um gjaldþrotaskipti. Hann gerði þó á endanum samkomulag við mæðgurnar um að greiða þeim ótilgreinda upphæð og fékk hann að halda heimili sínu og öðrum eigum.
Sjá einnig: Giuliani sviptur lögmannsréttindum í New York
Engar upplýsingar hafa litið dagsins ljós sem benda til þess að kosningasvindl hafi kostað Trump sigur í kosningunum. Hann lýgur því þó enn ítrekað .
Það gerði hann síðast í gærkvöldi en þá skrifaði hann færslu á samfélagsmiðil sinn um Giuliani og hve illa „öfga vinstri geðsjúklingar, allir Demókratar“, hefðu komið fram við hann.
„Og hann hafði rétt fyrir sér um allt! Þeir svindluðu í kosningunum, fölsuðu hundruð sagna, gerðu allt mögulegt til að rústa þjóð okkar, og nú, sjáið Rudy. Svo sorglegt!“