Warning: SQLite3::exec(): database is locked in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/includes/functions.php on line 118

Warning: SQLite3::exec(): database is locked in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/includes/functions.php on line 119
Gervigreindin fær ekki boð á Óskarinn

Gervigreindin fær ekki boð á Óskarinn

Gervigreindin fær ekki boð á Óskarinn

Persónur sem leiknar eru af gervigreind eru ekki gjaldgengar til tilnefningar á Óskarsverðlaunahátíðinni. Að sama skapi getur spunagreind ekki hlotið Óskarstilnefningu fyrir að skrifa kvikmyndahandrit.

Bandaríska Kvikmyndaakademían, sem heldur Óskarinn, greindi frá þessu í dag.

Nýjar reglur akademíunnar kveða á um að aðeins raunverulegir, lifandi leikarar geti fengið tilnefningu og að kvikmyndahandrit verði að vera skrifað af manneskju en ekki spjallmenni. Í flokki leikara eru það aðeins hlutverk sem skráð eru í formlegri skráningu og eru greinilega leikin af fólki, og með þeirra leyfi, sem eru gjaldgeng.

Nú á dögunum var frumsýnd kvikmyndin As Deep as the Grave (Djúp sem gröfin) en spunagreind var notuð til að skapa persónu er byggði á persónueinkennum leikarans Val Kilmers fyrir kvikmyndina. Leikarinn átti að leika í kvikmyndinni þegar hún var í tökum, en hafði ekki heilsu til þess og lést áður en henni var lokið.

Michael B. Jordan fékk Óskarinn í ár fyrir leik í aðalhlutverki í flokki karla en hann lék tvíburabræðurna Smoke og Stack í kvikmyndinni Sinners. Í samhengi ómennskra leikara er áhugavert að nefna að Jordan er gjarnan tölvugerður í myndinni þegar báðir bræðurnir eru á skjánum. Kvikmyndin hlaut þó ekki Óskarinn fyrir tæknibrellur.

Kvikmyndaakademían kynnti þó ekki aðeins nýjar reglur sem tengjast gervigreind og spunagreind í dag. Raunar voru breytingarnar með þeim mestu í nærri hundrað ára sögu Óskarsins, en reglur hátíðarinnar taka reglulega breytingum.

Leikarar geta fengið fleiri tilnefningar

Héðan af munu leikarar, jafnt í flokki aðalhlutverka og aukahlutverka, geta fengið tilnefningar fyrir fleiri en eitt hlutverk í hvorum flokki að því gefnu að frammistaðan hafni í fimm efstu sætunum. Áður gátu leikarar einungis fengið tilnefningu fyrir þá frammistöðu sem hlaut flest atkvæði, en þetta á ekki við um aðra flokka en leiklist.

Það eru meðlimir Bandarísku Kvikmyndaakademíunnar sem greiða atkvæði fyrir hátíðina.

Þá er einnig verið að gera breytingu á fyrirkomulagi flokks tæknibrellna. Meðlimir akademíunnar verða nú að horfa á þriggja mínútna myndband um tæknibrellur þeirra kvikmynda sem inn eru sendar í flokkinn til að kjósa um myndirnar. Breytingin er ekki ógáfuleg enda bestu tæknibrellurnar alla jafna með öllu ósýnilegar, þó að geimverur, risaeðlur og aðrir ótrúlegir hlutir komi gjarnan upp um þær.

Flokkur alþjóðlegra kvikmynda tekur töluverðum breytingum

Einnig er verið að innleiða breytingu á fyrirkomulagi flokks alþjóðlegra kvikmynda, sem áður var kenndur við kvikmyndir á erlendri tungu (það er öðru tungumáli en ensku). Fyrirkomulagið hefur alla tíð verið með þeim hætti að þjóðir senda inn eina kvikmynd fyrir sína hönd sem á möguleika á að hljóta náð akademíunnar.

Sem dæmi er Ástin sem eftir er, kvikmynd Hlyns Pálmasonar, framlag Íslands til Óskarsverðlauna í ár.

Nú geta alþjóðlegar kvikmyndir, sem ekki eru sendar á hátíðina fyrir hönd þjóðríkis, einnig hlotið tilnefningu í flokknum. Til þess að senda kvikmyndina inn og eiga möguleika á því verður kvikmyndin að hafa unnið til ákveðinna verðlauna á alþjóðlegri kvikmyndahátíð.

Þær hátíðir, og verðlaun, sem heimila þetta í ár eru eftirfarandi:

  • Kvikmyndahátíðin í Berlín, Þýskalandi (Gyllti björninn)
  • Kvikmyndahátíðin í Búsan, Suður-Kóreu (Besta kvikmynd)
  • Kvikmyndahátíðin í Cannes, Frakklandi (Gullpálminn)
  • Kvikmyndahátíðin í Sundance, Bandaríkjunum (Dómaraval í flokki heimskvikmynda)
  • Kvikmyndahátíðin í Toronto, Kanada (Pallsverðlaunin)
  • Kvikmyndahátíðin í Feneyjum, Ítalíu (Gyllta ljónið)

Þá er verið að gera fleiri breytingar á fyrirkomulagi flokks alþjóðlegra kvikmynda. Fram að þessu hafa tilnefningarnar verið kenndar við landið sem kvikmyndin kemur frá en héðan af verða þær kenndar við þá einstaklinga sem tilnefndir eru fyrir kvikmyndina.

Venjan er sú að leikstjóri taki við Óskarnum fyrir hönd allrar framleiðslunnar. Ekki verður nú breyting á því en leikstjórinn sjálfur hlýtur í framtíðinni verðlaunin og fær nafn sitt á Óskarinn. Í þessu samhengi þá hefur Kvikmyndaakademían fram að þessu ekki talið slík verðlaun með Óskarsverðlaunafjölda þessara leikstjóra, en það breytist frá og með næstu Óskarsverðlaunahátíð.

Það er þess vert að nefna að alþjóðlegar kvikmyndir hafa þó getað átt möguleika á að fá tilnefningar í öðrum flokkum en flokki alþjóðlegra kvikmynda. Til að mynda hlaut suður-kóreski leikstjórinn Bong Joon Ho fern Óskarsverðlaun árið 2020 fyrir kvikmynd sína Parasite (Sníkjudýr), meðal annars fyrir bestu kvikmynd á erlendri tungu og fyrir bestu kvikmyndina.

#boð #ekki #fær #gervigreindin #óskarinn


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-05-01-gervigreindin-faer-ekki-bod-a-oskarinn-474107

Warning: SQLite3Result::fetchArray(): Unable to execute statement: database is locked in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/includes/functions.php on line 84