Gauti B. Eggertsson, hagfræðiprófessor við Brown University, gagnrýnir Katrínu Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, harðlega fyrir málflutning hennar gegn aðildarviðræðum við Evrópusambandið.Hann segir ummæli hennar gróflega villandi og lýsir framgöngu hennar á útifundi á Austurvelli í vikunni sem sínum mestu vonbrigðum með Katrínu á öllum hennar pólitíska ferli.Gauti gerði málið að umtalsefni í færslu á Facebook í gærkvöldi en hann segist hafa verið sakaður um persónulega árás á Katrínu eftir að hafa lýst vonbrigðum með málflutning hennar.
Gauti lýsir sárum vonbrigðum með Katrínu – Þjóðþekktir taka undir: „Þetta var sárt“