Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, spurði Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra út í beinan mánaðarlegan styrk sveitarfélaga til erlendra ríkisborgara í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. Hann gagnrýnir að örorku- og endurhæfingarlífeyrir Tryggingastofnunar til erlendra ríkisborgara hafi þrettánfaldast frá 2010 til 2025, úr 1,3 milljarði í 16,6.
„Menn hafa komið hingað til lands, aldrei verið á vinnumarkaði, þegið þennan styrk árum saman, jafnvel fimm eða sex ár.“
Í frétt Morgunblaðsins segir að tveir sakborningar í Höfðatorgsmálinu hafi einkum verið á framferði sveitarfélaga.
Snorri vísar til umfjöllunarinnar í fyrirspurninni:
„Almenningur frétti fyrst af málinu þegar flett var ofan af því að einn slíkur sem hafði komið sér svo makindalega fyrir á kostnað skattgreiðenda reyndist vera sakborningur í manndrápstilraun í bílakjallara.“
Þorbjörg svarar Snorra og segir að þótt málaflokkur þessi heyri undir annað ráðuneyti geti hún þó sagt að Vinnumálastofnun hafi aukið eftirlit með greiðslu atvinnuleysisbóta og annarra bóta.
„Það er aðgerð sem kom fram með nýrri stjórn. Við erum að vinna þennan málaflokk, skref frá skrefi. Byrjum á alþjóðlegri vernd. Núna eru það dvalarleyfi, næst voru það ríkisborgararétturinn.“