Lok talningar í Norðausturkjördæmi og Norðvesturkjördæmi gætu orðið klukkan 7 í fyrramálið. Þetta kemur fram í svari frá yfirkjörstjórnum í kjördæmunum við fyrirspurn fréttastofu. Bæði kjördæmin eru stór og tíma tekur að koma atkvæðum úr kjördeildum í talningu hjá yfirkjörstjórnum.
Kjörstaðir loka víða ekki fyrr en klukkan tíu í kvöld. Suðurkjördæmi stefnir á að vera fyrst með fyrstu tölur klukkan hálf ellefu. Yfirkjörstjórnir í Reykjavík, Norðaustur- og Norðvesturkjördæmunum telja fyrstu tölur væntanlegar frá þeim um miðnætti.
Ólöf Magnúsdóttir, verkefnastjóri skrifstofu borgarstjórnar, segist vonast til þess að fyrstu tölur verði lesnar upp í kringum miðnætti, en það gæti þó dregist.
„Það fer allt eftir kjörsókninni. Ef við fáum rosalega mikið af atkvæðum í fyrstu tölum þá erum við náttúrulega lengur að telja okkur í gegnum það, og það sem ég er að heyra úr símavörunni okkar sem tekur við sko kjörsókninni frá öllum mismunandi kjörstöðum okkar, þá er mjög mikil kjörsókn núna,“ segir Ólöf.
Kjörsókn í Reykjavík var 33% klukkan þrjú síðdegis og skipt verður um kjörkassa klukkan fimm.
„Við viljum klára að telja allt sem kom úr fyrir kössunum áður en við gefum tölur svo við séum með nokkuð rétta mynd af niðurstöðunni,“ segir Ólöf.
Um lokatölur frá Reykjavík segir Ólöf:
„Við erum að láta okkur dreyma um að vera bara búin að því klukkan þrjú, en það er líka með þessari miklu kjörsókn í morgun erum við líka með mjög mikið af utankjörfundaratkvæðum og það tekur líka tíma. Það er mikil vinnsla í kringum þau,“ segir Ólöf.
„En af því þetta er svo einfalt; þetta er já, nei og auðir og ógildir, að við erum að vona að þetta gangi svolítið vel, en við viljum ekki lofa upp í ermina á okkur.“