Fyrirsætan Karlie Kloss má vænta þess að fá boð í brúðkaup vinkonu sinnar, söngkonunnar Taylor Swift, og Travis Kelce, ef marka má slúðurmiðla vestanhafs.
Kloss og Swift urðu vinkonur í kringum árið 2013. Þær birtust saman í tónlistarmyndböndum, fóru saman á tónleika og eyddu miklum tíma saman utan sviðsljóssins. Vinkonusambandið tók að kólna árið 2018 þegar Kloss giftist Joshua Kushner. Swift mætti ekki í brúðkaupið og var með þá afsökun að mikið væri að gera í vinnunni. Athygli vakti að þáverandi umboðsmaður Kloss, Scooter Braun, var meðal gesta.
Braun keypti réttindin að fyrstu plötum Swift í júní 2019. Hún sagði í viðtali síðar að þau viðskipti hefðu valdið henni miklum óhug. Í kjölfarið hóf hún að taka nokkrar af eldri plötum sínum upp aftur.
Hjá Page Six kemur fram að sum vináttusambönd Swift hafi orðið stirðari af ýmsum ástæðum og að stjórstjarnan vildi frekar „umkringja sig fólki sem getur sannarlega deilt ástinni og verið til staðar fyrir hana, sérstaklega þeim sem hafa gegnt mikilvægu hlutverki í lífi hennar í mörg ár.“
Þar kemur einnig fram að fyrrverandi vinkonurnar, Kloss og Swift, hafi unnið úr vandamálunum þó að vinskapur þeirra hafi aðeins fjarað út og að Kloss verði á gestalistanum.
Talið er að brúðkaupið fari fram í byrjun júlí. Miklar vangaveltur hafa verið um hverjir fái boð í veisluna.
Meðal þeirra sem sagðir eru hafa fengið boð eru Zoë Kravitz, Ed Sheeran, Haim-systurnar, Suki Waterhouse, Gigi Hadid og Selena Gomez.
