Yoon Suk-yeol, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu, var í héraðsdómi Seúl í dag dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir tilraun til að dikta upp stríðsástand.
Forsetinn sendi dróna inn fyrir landamæri Norður-Kóreu haustið 2024. Það var átylla fyrir setningu herlaga í landinu í desember það sama ár.
Í febrúar var forsetinn fyrrverandi dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir tilraunir til að lama störf suðurkóreska þingsins með setningu herlaganna.
Saksóknarar vildu auk þess meina að drónaflug forsetans hefði aukið spennu milli nágrannaríkjanna á Kóreuskaga. Aðgerðir hans hefðu auk þess leitt til þess að trúnaðarupplýsingum, meðal annars um hernaðarstyrk, hefði verið lekið.
Yoon hefur áfrýjað dómnum. Hann heldur því fram að herlög hafi verið sett á í þágu þjóðarinnar.
Lögmenn Yoons segja ákærurnar byggðar á sandi. Forsetinn hafi ekki skipað fyrir um drónaflugið eða veitt samþykki sitt fyrir því. Aðgerðin hafi verið varnarviðbragð Suður-Kóreumanna við ruslaloftbelgjum sem Norður-Kóreumenn sendu yfir landamærin þetta sama ár. Drónaflugið hafi ekkert haft með setningu herlaga að gera.
Yoon var kærður til embættismissis og þurfti því að stíga til hliðar um miðjan desember 2024. Stjórnlagadómstóll vék Yoon svo varanlega úr embætti í apríl í fyrra.