Fyrrum forseti og varaforseti Ekvador, Lenin Moreno, var dæmdur í fimm ára fangelsi í gær fyrir spillingu. Hann var fundinn sekur um að hafa þegið mútur frá kínversku fyrirtæki fyrir að hafa aðstoðað fyrirtækið við að tryggja sér samning um byggingu stærstu vatnsaflsvirkjunar landsins, Coca Codo Sinclair-stíflunnar.
Moreno var forseti frá 2017–2021 og var varaforseti á árunum 2007–2013 þegar mútumálið átti sér stað. Saksóknarar segja að kínverska fyrirtækið, Sinohydro, hafi greitt um 76 milljónir dollara í mútur, eða um 4% af kostnaði við framkvæmdina.
Moreno er einn tuttugu einstaklinga sem voru dæmdir í málinu. The Washington Post greinir frá því að eiginkona hans, dóttir, tveir bræður og mágur hafi einnig verið dæmd fyrir að vera vitorðsmenn hans. Eiginkona hans og dóttir fengu þrjátíu mánaða dóm en þeim var öllum gert að greiða til baka þrefalda þá upphæð sem þau fengu með ólöglegum hætti, innan 90 daga.
Moreno segir að hann hafi ekki fengið krónu frá kínverska fyrirtækinu og ætlar að áfrýja dómnum. Hann er lamaður fyrir neðan mitti og mun afplána dóminn í stofufangelsi.