Fyrirtækjalán „kerfisbundið dýrari á Íslandi“
Vextir á nýjum lánum til fyrirtækja eru 3,2–5,6 prósent í ríkjum ESB en yfir 10 prósent á Íslandi. Á síðastliðnum 10 árum hafa vextir á fyrirtækjalánum verið 3–6 prósentum hærri á Íslandi en á evrusvæðinu.
Gangi Ísland inn í ESB og taki upp evru, leiðir það líklega til töluvert lægri vaxta á nýjum lánum til íslenskra fyrirtækja. Þetta er meðal annars það sem kemur fram í skýrslu Félags atvinnurekenda sem hugveitan Evrópustraumar vann fyrir félagið. Þar segir að áhrifin af upptöku evru komi fram í lægra vaxtastigi og minni gengisáhættu. Þannig eru vextir á nýjum lánum til fyrirtækja innan ESB um 3,2 til 5,6 prósent. Á Íslandi eru vextirnir yfir tíu prósent.
Þá segir í skýrslunni að á síðustu tíu árum hafi vextir á fyrirtækjalánum verið 3 til 6 prósentum hærri á Íslandi en á evrusvæðinu.
Íslensk fyrirtæki þurfa að taka á sig töluverða gengisáhættu ætli þau að taka erlent lán með tekjur í íslenskum krónum. Því fylgir almennt hærra vaxtaálag og tryggingakröfur af hálfu banka á Íslandi. Auk þess sem lánshæfis- og greiðslumat er mjög strangt hjá íslenskum bönkum.
Þau fyrirtæki sem hafa fengið …