Boðað hefur verið til fundar með þingflokksformönnum á Alþingi klukkan 10:45 í dag. Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, hefur lagt fram frumvarp. Lög verða sett á verkfall flugvirkja.Vísir greinir frá þessu.Frumvarp Eyjólfs kemur fyrir þingið í dag. Verður verkfallið, sem hófst á miðnætti í nótt, því stöðvað. En Icelandair aflýsti öllum brottförum frá Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli í dag.
Fundur óvænt boðaður með þingflokksformönnum – Lög verða sett á verkfall flugvirkja - Uppfært