Frumvarpið hefur farið í eina umræðu á þingi en verið til umræðu í allsherjar- og menntamálanefnd frá því í nóvember á síðasta ári. Nefndin hefur fundað fjórtán sinnum um frumvarpið, síðast í gær.
„Við munum afgreiða málið úr nefnd sennilega strax í næstu viku,“ segir Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og framsögumaður allsherjar- og menntamálanefndar, í svari til fréttastofu í dag.
Greint var frá því í upphafi mánaðar að allsherjar- og menntamálanefnd hygðist leggja fram breytingartillögu á frumvarpi dómsmálaráðherra sem felst í því að óleyfilegt verði að vista börn á fyrirhugaðri brottfararstöð. Nefndarmaður segir tillöguna hafa komið frá ráðuneytinu.
„Það var nú fyrst og fremst vegna þess að það voru mjög margir umsagnaraðilar sem gerðu athugasemd við það að börn væru vistuð í brottfararstöð,“ sagði Grímur á þeim tíma.
Alls skiluðu 35 einstaklingar, félög og stofnanir umsögn um frumvarpið í umsagnarferli sem hafa svo hitt nefndina. Eftir að frumvarpið verður afgreitt úr nefnd á eftir að fara fram umræða á þingi. Samkvæmt starfsáætlun þingsins á að slíta þingi föstudaginn 12. júní.