Tveimur frönskum geimförum verður skotið út fyrir himinhvolfið á næsta ári þar sem annar þeirra mun dvelja um borð í fyrstu einkareknu geimstöð veraldar, Haven-1, sem runnin er undan rifjum geimferðafyrirtækisins Vast á Long Beach sem frumkvöðullinn Jed McCaleb setti á fót árið 2021 í því augnamiði að þróa geimstöðvar með gerviþyngdarafli og „koma mannkyni út fyrir sólkerfið“.
Verður för Frakkanna tveggja, geimfaranna Thomas Pesquet og Arnaud Prost, farin í krafti nýundirritaðs samkomulags Vast við frönsk stjórnvöld og skrifaði Emmanuel Macron Frakklandsforseti á samfélagsmiðilinn X í gær að samningurinn staðfesti „geimmetnað“ Frakka.
Þeir Pesquet og Prost halda hvor í sína geimferðina sem hvor um sig mun standa í tvær vikur segir í tilkynningu frá Vast um verkefnið og staðfestir franska geimferðastofnunin CNES að geimferð tvemenninganna sé sú fyrsta sem heitið sé til einkarekinnar geimstöðvar.
Fara báðir með skutlum Musks
Prost mun dveljast um borð í Haven-1 á meðan Pesquet heimsækir Alþjóðlegu geimstöðina ISS en ferð hans verður sú þriðja þangað og hefst um mitt næsta ár.
Báðir verða frönsku geimfararnir sendir á loft með Falcon 9-geimskutlum fyrirtækisins SpaceX sem Tesla-milljarðamæringurinn Elon Musk stendur á bak við. Pesquet verður stjórnandi sinnar ferðar og tekur CNES það fram í tilkynningu sinni að það verði í fyrsta skipti sem stjórnandi bandarísks geimfars sé ekki Bandaríkjamaður.
Eitt af takmörkum Vast, fyrir utan að koma mönnum út úr sólkerfinu, er að geimstöðin Haven-2 leysi ISS af hólmi þegar hún lýkur hringsóli sínu um jörðina árið 2030 en ISS hefur nú haft stöðuga mönnun í meira en aldarfjórðung.