Gæsluvarðhald yfir karlmanni sem er grunaður um að hafa banað föður sínum í Salahverfi í síðasta mánuði hefur verið framlengt á grundvelli almannahagsmuna. Lögregla bíður gagna frá rannsóknarstofu lögreglunnar, meðal annars úr lífsýnarannsókn.
Maðurinn sem lést var eiginmaður Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur þingmanns Flokks fólksins og formanns atvinnuveganefndar Alþingis. Eldri sonur þeirra hjóna er sá sem er í haldi lögreglu og er grunaður um aðild að andláti föður síns.
Lilja Rafney greindi sjálf frá andláti eiginmannsins skömmu eftir að hann lést og sagði hann hafa glímt við veikindi síðustu árin eftir hjartaáfall og heilablóðfall.
Sonurinn er öryrki og hefur glímt við andleg veikindi lengi. Lilja Rafney sagði fréttastofu í ágúst að stundum hefði gengið vel og stundum ekki.
Grunur um manndráp kviknaði ekki strax á vettvangi
Ævar Pálmi Pálmason aðstoðaryfirlögregluþjónn segir lögreglu telja sig vera komna með nokkuð skýra mynd af atburðarásinni. Gæsluvarðhald yfir manninum hafi verið framlengt til 29. september. Lögregla bíði nú gagna frá rannsóknarstofu sænsku lögreglunnar – meðal annars lífsýnarannsóknar. Hann kveðst ekki getað tjáð sig frekar um það.
Hann kveðst ekki þora að segja til um hvenær málið farið á ákærusvið.
Aðspurður segir hann grun hafa kviknað um að andlát mannsins hafi borið að með saknæmum hætti skömmu eftir andlátið – en þó ekki strax á vettvangi.
Hann sagði ekki tímabært að upplýsa um dánarorsök mannsins og vildi ekki gefa upp hver hefði hringt á lögreglu. Hann sagði lögreglu geta tjáð sig frekar um málið þegar niðurstöður úr rannsóknum í Svíþjóð liggi fyrir.