Íslenskir aðalverktakar eiga að hanna og byggja nýja þjóðarhöll í Laugardal og hefjast framkvæmdir í haust. Verkefnisstjóri er bjartsýnn á að höllin verði tekin í notkun árið 2030.
Tvö endanleg tilboð bárust í samkeppnisútboði
Kostnaður hljóðar upp á 16,8 milljarða króna. Þrjú fyrirtæki voru valin til þátttöku í forvali útboðsins. Útboðið stóð yfir í ár og bárust tvö endanleg tilboð, frá Íslenskum aðalverktökum og Ístaki. Þrettán manna nefnd mat tilboðin út frá á fjórða tug matsliða, þar á meðal hönnunar, notagildis, sjálfbærni og hagkvæmni.
Þjóðarhöllin á að rísa sunnan Laugardalshallar og tengjast borgarlínu, göngu- og hjólaleiðum, auk þeirra mannvirkja sem fyrir eru. Hennar hefur lengi verið beðið, þar sem Laugardalshöll uppfyllir ekki kröfur til alþjóðlegrar keppni. Því hefur þurft að leika landsleiki annars staðar.
Átti að vera tilbúin í fyrra
Viljayfirlýsing um byggingu þjóðarhallar var undirrituð í maí árið 2022 og til stóð að höllin yrði tilbúin í fyrra. Helgi Geirharðsson verkefnisstjóri segir ýmsa þætti hafa orðið til þess að verkefnið hafi tafist. Opinber verkefni séu innan þröngs ramma þegar kemur að útboðum.
„Það er forval og það þarf alls konar samþykki frá eigendum til þess að tryggja að fjármagn sé til staðar fyrir verkefnið og þetta safnast upp í tímaseinkanir. Við erum í rauninni í millitíðinni, frá 2022, búin að þarfagreina verkefnið mjög vel og skilgreina hvað við viljum fá. Ég held að við séum á nokkuð góðum stað með þetta.“
Nú taki við lögbundinn biðtími áður en hægt er að ganga frá samningi. Fyrirtæki sem buðu í verkið hafa viku til að kynna sér niðurstöðuna og gera við hana athugasemd eða kæra. Helgi segir framkvæmdir geta hafist í haust að öllu óbreyttu.
Hvenær er þá áætlað að ný Þjóðarhöll verði tekin í notkun?
„Fyrir mitt ár 2030.“
Telurðu það raunhæft?
„Já, algjörlega. Þetta er framkvæmdatími sem er bara vel þekktur. Þegar þú ert kominn af stað þá eru þetta það góðir verktakar að þeir klára sig á því.“