Fósturgreiningardeild Landspítala flytur aftur í kvennadeildarhúsið við Hringbraut í næstu viku.
Deildin flutti starfsemi sína tímabundið í hús Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð í lok árs 2021 vegna umfangsmikilla viðgerða og endurbóta á húsnæði kvennadeildarinnar við Hringbraut.
Í næstu viku sameinast því öll þjónusta kvennadeildarinnar á ný eftir fimm ára aðskilnað. Þá verður meðgönguvernd, fósturgreining og bráðaþjónusta kvenna- og barnaþjónustu aftur undir sama þaki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítala. Þar segir að þetta muni tryggja betra flæði, nánara samstarf fagfólks og enn heildstæðari þjónustu við skjólstæðinga.