Forseti Ungverjalands, Tamas Sulyok, hefur samþykkt að láta af embætti. Hann undirritaði í gær viðauka við stjórnarskrá landsins, sem mun binda enda á forsetatíð hans á miðnætti í kvöld. Forsætisráðherra Ungverjalands, Péter Magyar, og Tisza-flokkurinn áttu frumkvæði að breytingunum á stjórnarskránni sem kynntar voru á mánudag.
Magyar lofaði breytingum á stjórnkerfi landsins í þingkosningunum í apríl og tiltekt í kerfinu. Hann hefur kallað forsetann og fleiri hátt setta embættismenn leikbrúður Viktors Orbans fyrrverandi forsætisráðherra.
Í valdatíð Orbans voru gerðar ýmsar breytingar innan stjórnkerfisins og bandamönnum Orbans var komið fyrir í hinum ýmsu stöðum innan þess. Magyar hefur margoft hvatt Sulyok til að segja af sér embætti og sakað hann um að þjóna hagsmunum Orbans og ríkisstjórnar hans.
Sulyok tók sér nokkra daga til að íhuga hvort hann skrifaði undir breytinguna, sem hann svo féllst á að gera í gær. Hann hefur sakað Tisza-flokkinn um að traðka á grunngildum frjáls samfélags og segir að breytingarnar séu aðför að réttarríkinu.
Forseti ungverska þingsins, Agnes Forsthoffer, verður sett í embætti forseta tímabundið eða þar til þingið velur nýjan forseta sem verður innan 30 daga.