Máli ríkisendurskoðanda var lokið af hálfu forsætisnefndar Alþingis og honum tilkynnt um það með bréfi 18. ágúst. Þetta staðfestir forseti Alþingis, Þórunn Sveinbjarnardóttir, í samtali við fréttastofu. Hún sagðist ekki geta tjáð sig um meðferð eða lok málsins að öðru leyti.
Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi segir málinu einfaldlega lokið og að forsætisnefnd telji ekki tilefni til frekari afskipta af starfsmannamálum hans.
Mál ríkisendurskoðanda rataði á borð forsætisnefndar Alþingis í nóvember í kjölfar umfjöllunar fréttastofu um starfsmannamál innan Ríkisendurskoðunar. Starfsfólk lýsti ófremdarástandi og sakaði Guðmund Björgvin um einelti.
Þegar þá var komið við sögu voru þrír sviðsstjórar af fimm í veikindaleyfi, þeirra á meðal mannauðsstjóri embættisins. Sviðsstjórarnir þrír hafa allir látið af störfum hjá embættinu og einn þeirra, fyrrverandi staðgengill ríkisendurskoðanda, höfðaði mál gegn embættinu vegna tilfærslu í starfi. Aðalmeðferð verður í málinu síðar í þessum mánuði.
Forsætisnefnd Alþingis samþykkti í desember verklagsreglur um meðferð tilkynninga um einelti og áreitni af hálfu ríkisendurskoðanda. Samkvæmt verklagsreglunum getur starfsfólk Ríkisendurskoðunar beint tilkynningum til skrifstofustjóra Alþingis. Þær reglur eru enn í gildi að sögn skrifstofustjóra.
Guðmundur Björgvin segist í samtali við fréttastofu fagna niðurstöðu forsætisnefndar í málinu. Í bréfi sem hann sendi til allra þingmanna í vor sagðist hann íhugaði að leita réttar síns fyrir dómstólum vegna málsmeðferðar forsætisnefndar. Hann vill ekki tjá sig stöðuna á þeim vangaveltum að svo stöddu.
„Ég fagna því að þessi niðurstaða sé fram komin, og ég held að allir hlutaðeigandi sameinist um að horfa björtum augum til framtíðar. Við höldum áfram að vinna okkar góðu verk hér hjá Ríkisendurskoðun,“ segir Guðmundur Björgvin.
„Ég hef aldrei gerst sekur um einelti eða áreitni eða ofbeldi gagnvart starfsfólki mínu eða öðrum þannig að ég heldi að ég hljóti í því ljósi að fagna þessari niðurstöðu. En svona mál eru alltaf flókin og erfið í eðli sínu, og af þeim held ég að þurfi allir hlutaðeigandi að draga einhvern lærdóm.“
Guðmundur Björgvin staðfestir við fréttastofu að embættið sé með mannauðsstjóra á leigu frá Attentus. Þá hafi hann skipað nýjan staðgengil ríkisendurskoðanda, Sigríði Auði Arnardóttur. Samkvæmt lögum þarf forsætisnefnd Alþingis að staðfesta skipun staðgengils. Forseti Alþingis staðfestir að málið sé á borði nefndarinnar.