Spænsk yfirvöld hafa staðfest að 12 af þeim 13 sem fórust í gróðureldunum í Andalúsíu á suður Spáni í síðustu viku voru erlendir ríkisborgarar. Sjö hinna látnu voru frá Bretlandi, þrjú frá Belgíu, einn var frá Frakklandi, einn frá Bandaríkjunum og einn frá Spáni. Fólkið var allt fullorðið, átta konur og fimm menn.
Gróðureldarnir brutust út á fimmtudaginn í Almeríuhéraði á suðaustur Spáni en fjölmargir erlendir ríkisborgarar búa þar um slóðir. Gróðureldarnir kviknuðu út frá raflínu sem féll á jörðina og við það náðu blossar að læsa sig í skraufaþurran gróðurinn.
Þetta eru mannskæðustu gróðureldar á Spáni í áraraðir og yfir 7000 hektarar lands brunnu í eldunum.
Búið er að ná tökum á gróðureldunum og hafa íbúar fengið að snúa aftur til síns heima.