Yfirvöld í Sádí-Arabíu segja drónaárásir hafi verið gerðar á olíuleiðslu sem liggur frá austri til vesturs í landinu á fimmtudagsmorgun. Drónarnir eru sagðir hafa flogið frá Írak og valdið tjóni í héruðunum Riyadh og Medina. Einhverjir særðust í árásunum en ekki hefur verið greint frá fjölda þeirra sem særðust.
Utanríkisráðuneyti Sádi-Arabíu fordæmdi árásirnar og segir að þeim verði ekki svarað að sinni að ósk forsætisráðherra Íraks. Þess í stað ætli yfirvöld að styðja viðleitni írösku ríkisstjórnarinnar til að fyrirbyggja árásir frá Írak gegn Sádi-Arabíu og nágrannaríkjum. Yfirvöld í Sádi-Arabíu áskilja sér þó rétt til að verja fullveldi sitt, öryggi, innviði og íbúa.
Ríkisstjórn Íraks sendi frá sér yfirlýsingu í gær sem greint var frá á ríkisfjölmiðlinum INA en í henni eru árásirnar sömuleiðis fordæmdar. Ríkisstjórnin heitir því að rannsaka hverjir beri ábyrgð á árásunum og ítrekar að bannað sé að nota landsvæði eða lofthelgi landsins til árása.
Olíuleiðslunni var lokað um tíma samkvæmt þarlendum ríkisfjölmiðli. Olíuleiðslan er um tólf hundruð kílómetra löng og flytur olíu á milli austur- og vesturhluta landsins. Frá því að stríðið hófst í Mið-Austurlöndum hefur notkun á leiðslunni aukist vegna lokunar siglingaleiða um Hormússund.