Flugvél rýmd í skyndi vegna sprengjuhótunar á Tenerife

Spænskir fjölmiðlar hafa greint sprengjuhótun sem varð til þess að rýma þurfti farþegaþotu á Tenerife South-flugvellinum á föstudagsmorgun en sá flugvöllur ætti að vera mörgum Íslendingum kunnur
Atvikið átti sér stað um borð í flugvél Jet2, sem var á leið frá Tenerife til London. Áætlaður brottfarartími vélarinnar var klukkan 11:20 að staðartíma.
Áður en vélin fór í loftið mun einn farþeganna hafa lýst því yfir að sprengja væri í farangri hans. Ummælin urðu til þess að öryggisviðbrögð voru þegar virkjuð á flugvellinum og öllum farþegum gert að yfirgefa vélina.
Lögreglumenn tóku í kjölfarið við rannsókn málsins og framkvæmdu ítarlega leit um borð. Farangur farþega var einnig kannaður til að ganga úr skugga um hvort raunveruleg hætta væri á ferðum.
Ekkert sprengiefni eða annað grunsamlegt fannst við leitina.
Öryggisaðgerðirnar urðu til þess að flugvélin var kyrrsett í rúmar tvær klukkustundir. Þegar leit hafði verið lokið og staðfest að engin hætta væri fyrir hendi fengu farþegar að fara aftur um borð.
Vélin fór loks í loftið frá Tenerife South klukkan 13:46, eða tveimur klukkustundum og 26 mínútum á eftir áætlun. Flugið til London gekk eftir það án frekari vandkvæða.
Ekki liggur fyrir hvort gripið hafi verið til aðgerða gegn farþeganum sem lét ummælin falla. Engar staðfestar upplýsingar hafa komið fram um að viðkomandi hafi verið handtekinn, ákærður eða sektaður.
Þá hefur þjóðerni farþegans ekki verið staðfest og ekki er vitað hvers vegna hann lét ummælin falla.