Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni

Óþekktur fljúgandi hlutur þaut skammt frá farþegaþotu British Airways skömmu eftir flugtak frá Heathrow-flugvelli í Lundúnum í sumar en Metro greindi frá málinu í fyrradag.
Atvikið varð 24. júní þegar Boeing 777-vél var á leið til New York. Flugmaður vélarinnar tilkynnti flugumferðarstjórn að hlutur, sem talinn var mögulega vera dróni, hefði flogið í gagnstæða átt um 50 fet fyrir ofan hægri væng vélarinnar.
Vélin var í um 6.000 feta hæð þegar atvikið varð. Flugmaður lýsti hlutnum sem glansandi, silfurlituðum og málmkenndum og sagði hann á stærð við „fjórar brauðristar“.
Rannsakendum tókst ekki að finna neitt loftfar sem passaði við lýsinguna og var hluturinn því skráður sem óþekktur.
British Airways segir við Metro að slík atvik tekin mjög alvarlega. Vélin hélt ferð sinni áfram og lenti í New York samkvæmt áætlun.