Ráðning kennara við leik- og grunnskóla í Grindavík er á lokametrunum segir formaður bæjarráðs. Fjörutíu og þrjú börn setjast á skólabekk í bæjarfélaginu næsta haust. Ekkert skólahald hefur verið í bænum í rúmlega þrjú ár.
43 nemendur setjast á skólabekk í haust
Nú þegar rúmlega sex vikur eru í skólasetningu grunnskóla eru bæjaryfirvöld í Grindavík í óðaönn að undirbúa komandi skólaár.
Guðbjörg Eyjólfsdóttir, formaður bæjarráðs, segir allt að verða klárt.
„Við réðum á vordögum til okkar skólastjóra í samrekinn leik- og grunnskóla í Grindavík. Og núna erum við búin að ráða í fimm komma fjögur stöðugildi í skólanum og ætlum okkur að ráða í þrjú og hálft stöðugildi í leikskólanum.“
Fjörutíu og þrír nemendur eru skráðir. Guðbjörg segir að þeir verði hugsanlega fleiri. Fjöldi Grindvíkinga hafi lýst yfir áhuga á að snúa til baka en óvissa vegna húsnæðismála setji strik í reikninginn.
Ekkert skólahald hefur verið í bænum frá því hann var rýmdur vegna jarðhræringa í nóvember 2023.
Nýtt áhættumat hjálpi til við að opna bæinn betur
Stjórnvöld gáfu út í vor að ekki væru forsendur til að hefja skólahald í Grindavík eða stuðla að aukinni búsetu barna í bænum í ljósi áframhaldandi óvissu um þróun jarðhræringa.
Guðbjörg segir að verið sé að vinna að nýju áhættumati sem hjálpi til við að opna bæinn betur. Samtal við stjórnvöld að undanförnu hafi verið gott.
„Bæði við menntamálaráðuneytið og forsætisráðuneytið og forsætisráðherra sjálfan. Hún kom í heimsókn til okkar fyrir tveimur vikum síðan og þar áttum við mjög gott spjall um næstu skref í endurreisn bæjarins,“ segir Guðbjörg.
Skólahald í bænum sé frumskilyrði til þess að hægt sé að reisa samfélagið upp að nýju í Grindavík.
„Það búa rúmlega 400 manns í bænum nú þegar og tæplega 1000 manns eru með lögheimili. Þannig við verðum hreinlega að veita þessa grunnþjónustu.“
Þannig að ykkar megin er allt að verða klárt til að bjóða nemendur velkomna á ný eftir þriggja ára hlé?
„Algjörlega. Húsið og mannvirkin í kring, það er allt tilbúið og til reiðu. Allt upp á tíu hjá okkur,“ segir Guðbjörg.
„Við bara getum ekki beðið og hlökkum til að skólabjallan hringi inn í haust. “