Óhapp varð á lóð leikskólans Grænuvalla á Húsavík um helgina. Maður sem var þar að leik með börnunum sínum féll í gegnum gólf á kastala.
„Ég þekki ekki hversu mikið hann slasaðist en það voru einhver meiðsli sem fylgdu þessu atviki,“ segir Jón Höskuldsson, fræðslufulltrúi Norðurþings.
Ef tækin eru ekki örugg er þeim lokað
150 börn eru í leikskólanum Grænuvöllum. Hann er gamalgróinn og lóðin komin til ára sinna. Þetta er þriðja tækið sem er tekið úr notkun þar á skömmum tíma.
„Það er bara komið slit í tækin og það er mat okkar að það sé ekki öruggt að nota þau eins og þau voru. Þá er það bara regla hjá okkur að þá er tækjunum lokað og ef þau teljast ónýt eru þau fjarlægð.“
Enginn galli er á tækjunum en það sem gaf sig um helgina er 11 ára gamalt og Jón segir að það hafi verið kominn tími á viðhald.
Foreldrar hafa áhyggjur
Vonir standa til að ráðist verði í endurbætur á lóðinni sem fyrst þótt ekki sé hægt að stækka hana. Foreldrar barna í leikskólanum hafa auðvitað áhyggjur af bágbornu ástandi hennar.
„Við vorum að fá skýrslu frá eftirlitsaðila, hún verður tekin fyrir í fjölskylduráði Norðurþings á þriðjudaginn. Þar verður farið yfir aðgerðir eða umbætur sem þarf á lóðinni á leiktækjum,“ segir Jón. Foreldrar hafi hvorki haft samband við hann né fræðslusviðið rætt sín á milli um að úrbóta sé þörf.
Jón vonar að leikskólalóðin sé næst á framkvæmdaáætlun bæjarins en þar sé af nægu að taka því fram undan er viðhald á stjórnsýsluhúsinu, endurbætur á gólfi íþróttahússins og sundlauginni í Lundi í Öxarfirði.