Líkt og Vísir hefur fjallað um gaf Héraðssaksóknari nýverið út ákæru á hendur þeim Vytautas Saslauskas og Arturas Sodys ásamt 68 öðrum fyrir umfangsmikil fjársvik af Landsbankanum og peningaþvætti í tengslum við þau. Einn sætir aðeins ákæru til upptöku á Gucci-tösku. Í heildina eru því 71 ákærðir í málinu.
Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag á milli klukkan 10 og 16 og tveir salir dómhússins við Lækjartorg verða notaðir svo allir ákærðu og verjendur þeirra geti fylgst með því sem fer fram.
Áður en þingfestingin hófst formlega ræddu margir verjendur við Barböru Björnsdóttir, dómara í málinu, og fóru yfir skipulag dagsins og hvar umbjóðendur þeirra ættu að vera. Einhvers konar hópaskiptingarkerfi hefur verið komið upp.
Auk ákærðu og verjenda þeirra verður nokkur fjöldi túlka viðstaddur þingfestinguna, enda tala ákærðu alls sex erlend tungumál.
Þingfesting byrjaði á þeim Saslauskas og Sodys, sem neita báðir sök í málinu, mótmæla upptökukröfu og krefjast sýknu af einkaréttarkröfu Landsbankans, sem nemur tæplega 100 milljónum króna.