Þrátt fyrir að sólskinið hafi vantað sums staðar skemmtu landsmenn sér konunglega á afmælisdegi lýðveldisins í alls konar hátíðarhöldum.
Blómabíllinn markaði upphaf dagskrárinnar á Akureyri og lagði hann af stað frá Naustaskóla klukkan 11:00 í morgun. Kristinn Örn Jónsson, fyrrum ökukennari og núverandi blómabílstjóri, segir þetta orðinn hluta af hátíðarhöldunum hjá sér og mörgum bæjarbúum. Blómabíllinn hefur verið keyrandi um götur Akureyrar síðastliðin 6 ár á 17. júní en hann er þó ekki nýtt fyrirbæri. Þegar Kristinn var ungur drengur þótti það mikið sport að hlaupa á eftir blómabílnum um bæinn á 17. júní.
Upphafið að Bíladögum
Stærsta bílasýning landsins var opnuð í Boganum en þar má finna hin ýmsu tól og tæki, ekki bara bíla. Sýningin hefur verið hluti af akureyskri menningu allt frá 1974 og var hún einkar glæsileg í ár. Mótorhjól, keppnisbílar, óvenjulegir bílar og fornbílar voru til sýnis í Boganum en sýningin er alltaf vel sótt af Akureyringum. Hún markar upphaf Bíladaga sem fara fram í bænum næstu daga.
Brugðust við veðri og færðu hátíðarhöldin inn
Á Egilsstöðum brugðust menn við með því að færa hátíðarhöldin inn í íþróttamiðstöðina þar sem veður þótti leiðinlegt. Fimleikasýning, hoppukastalar, sykurull og andlitsmálning voru á dagskránni og skemmtu gestir sér vel inni í hlýjunni.
Allt með hefðbundnum hætti á Ísafirði
Nýr bæjarstjóri á Ísafirði ávarpaði hátíðargesti ásamt að Fjallkonan flutti ávarp. Auðvitað var einnig skrúðganga með lúðrasveitinni og gátu gestir einnig gætt sér á kökum í kökuhlaðborði kvennaliðs Vestra, sem er fjáröflun hjá félaginu.
Í kvöld fara svo fram opnunartónleikar hátíðarinnar Við Djúpið sem stendur alla helgina.
Sól í hjarta á Dalvík
Sólin hafði gert sig heimakomna hjá Dalvíkingum undanfarna daga en hún lét sig vanta í dag. Gestir hátíðarhaldanna létu það ekki á sig fá og gengu fylktu liði frá íþróttamiðstöðinni að menningarhúsinu Bergi þar sem hátíðardagskrá fór fram. Ýmis tónlistaratriði og ræða sveitarstjóra voru á dagskrá, að ógleymdu karamelluregni.