Finnbjörn A. Hermansson forseti ASÍ ætlar ekki að bjóða sig fram til endurkjörs á þingi Alþýðusambandsins sem fram fer um miðjan næsta mánuð. Hann tók við 2023 af Kristján Þórði Snæbjarnarsyni sem settist á Alþingi 2024.
Enginn frestur er til að skila inn framboði til forseta. Nægir að bjóða sig fram á þinginu sjálfu. Meðal tillagna að lagabreytingum sem lagðar verða fram á þinginu er að fækka varaforsetum ASÍ. Þeir eru nú þrír en lagt er til að aðeins verði einn varaforseti eins og var lengst af - þar til í upphafi aldarinnar.