Fimm flugferðum hefur verið aflýst hjá Icelandair í dag, en um er að ræða flug til Frankfurt, Stokkhólms, Berlínar, Portland og New York.
Þetta kemur fram á vef Keflavíkurflugvallar.
Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Icelandair, segir ástæðu aflýsingar flugferðanna til Berlínar og Stokkhólms koma til vegna áhafnaskorts, en fluginu til Frankfurt, Portlands og New York var aflýst vegna flugvélaskorts.
„Flugvélaskorturinn kemur til bæði vegna véla í viðhaldi og einnig hefur orðið töf á afhendingu á Airbus-vél sem við áttum von á núna í vikunni en kemur núna í byrjun júní, sem bætist við flotann,“ segir Ásdís við mbl.is.
Kemur í ljós
Spurð hvort vænta megi fleiri raskana á flugferðum segir hún það bara verða að koma í ljós.
„Þetta er bara það sem er í dag, en við erum bara að vinna í þessum málum og það verður bara að koma í ljós.“
Nokkuð hefur verið fjallað um raskanir á flugferðum Icelandair upp á síðkastið þar sem ekki hefur tekist að manna áhafnir vélanna.
Bogi Nils Bogason forstjóri flugfélagsins hefur áður sagt að margt bendi til þess að áhafnaskorturinn sé tilkominn vegna óformlegra verkfallsaðgerða flugmanna.