Starfsmannahópurinn í gæludýraversluninni Dýraríkinu í Holtagörðum er líklega fjölbreyttari en gengur og gerist. Tveir úr hópnum eru fiðraðir og hrekkjóttir og annar þeirra er veikur fyrir myndarlegum karlmönnum.
Þeir eiga stóran aðdáendahóp, en hafa ekki látið velgengnina stíga sér til höfuðs.
Vinsælustu starfsmennirnir
Þetta eru páfagaukarnir Hroði og Logi. Sá fyrrnefndi er af tegundinni Harlequin macaw, hinn tilheyrir tegundinni Green-winged macaw. Þeir eru báðir um átta ára gamlir og þeir eru líka frændur.
„Þessir hérna eru vinsælustu starfsmennirnir, held ég,“ segir Þórarinn Jónas Þór eigandi páfagaukanna, framkvæmdastjóri Dýraríkisins og einn eigenda fyrirtækisins.
Spurður í hverju dagleg störf gaukanna felast segir Þórarinn það vera sitt lítið af hverju.
Það er aðallega að rusla svolítið til, stríða viðskiptavinunum og spjalla við viðskiptavini. Þessir tveir eiga fjölmarga vini sem koma hér reglulega og tala við þá.
Veikur fyrir myndarlegum karlmönnum
Þórarinn segir að fuglunum komi ágætlega saman, Hroði sé heldur frakkari. „Hann er hrekkjusvín. Og hann gengur í manngreinaálit. Ef það eru karlmenn, sem Hroða finnst myndarlegir, þá sér hann ekki konur og glefsar í þær ef þær eru nálægt.“
Logi er blíður og snjall að sögn Þórarins, en reyndar stóð aldrei til að hann yrði heimilisfastur hjá honum.
En ég bara tímdi ekki að selja Loga. Hann stal svo stórum hluta af hjartanu í mér að ég gat ekki látið hann fara neitt. Ég er bara með hann.
Logi át stóla, borð og sjónvarp
Sambúðin hefur þó ekki gengið áfallalaust fyrir sig. „Fyrstu mánuðina skemmdi hann töluvert heima,“ segir Þórarinn. „Hann kláraði alla borðstofustólana, borðstofuborðið og eitt stykki sjónvarp áður en ég lærði á hann og hann lærði hvað má og má ekki.“
Málgefnir fuglar
Frændurnir fiðruðu eru á köflum skrafhreifnir og Þórarinn segir þá kunna meira en 400 orð.
„Þeir kunna meira að segja stuttar setningar. Þeir eru ekki bara að apa upp orð og endurtaka heldur eru þeir að nota tungumál til að tjá sig. Ef þeir eru að borða eitthvað sem maður er að gefa þeim úr gaffli eða skeið eða eitthvað... ef þeim finnst það gott og vilja meira, þá segja þeir „meira“.“
Fjölhæfir frændur
Auk starfa sinna í Dýraríkinu hafa frændurnir komið fram í auglýsingum og tekið þátt í ýmsum uppákomum. Fóstri þeirra segir að velgengni og vinsældir hafi lítt stigið þeim til höfuðs, þrátt fyrir að þeir eigi stóran hóp aðdáenda.
„Gríðarlega marga. Og það er meira að segja fólk sem á leið hérna hjá sem jafnvel á ekki gæludýr sem kemur samt í heimsókn að heilsa upp á þá.“