Það getur verið erfitt að velja hvað á að taka með og hvað ekki þegar farið er í ferðalag. Sumir taka alltaf of mikið með en svo gleymist alltaf eitthvað mikilvægt heima eins og hleðslutæki. Ferðalangar eiga það til að taka með sér klósettpappír í ferðalög.
Í Bretlandi var gerð könnun á ferðavenjum tvö þúsund manns. Var meðal annars spurt út í hvað fólk tekur með í ferðalög og voru niðurstöðurnar forvitnilegar eftir því sem fram kemur á The Sun.
Þar kom fram að 44 prósent skilgreindu sig sem fólk sem pakkaði of mikið. Flestir eða 28 prósent viðurkenndu að gleyma hleðslutæki. Næst algengast var að gleyma snyrtivörum en 20 prósent könnuðust við það vandamál. Einnig var algengt að fólk gleymdi lyfjum eða 13 prósent játuðu að hafa gert það.
Þarf að taka allt með?
Þegar plássleysi og farangursheimild er ekki vandamál pakkar fólk oft alls konar hlutum sem það þarf ekki. Í sömu könnun viðurkenndu 26 prósent að hafa pakkað klósettpappír, 18 prósent pakka eigin sængurfötum og tíu prósent taka með eigin krydd í ferðalögin.
Að pakka fyrir ferðalög getur því verið mikið vandamál og í rauninni svo mikið að 20 prósent viðurkenndu að upplifa stress í kringum að pakka fyrir ferðalög. Rúmlega helmingur pakkaði of miklu vegna þess að það vissi ekki hvernig veðrið yrði.

