„Fékk 21 félagi boð á þennan fund?“
Stofnandi Sósíalistaflokksins, Gunnar Smári Egilsson, segir nýjan formann flokksins, Jón Ferdínand Estherarson, reka fólk úr flokknum án heimildar og að aðalfund mætti kæra til lögreglu. „Ætti Sigmundur Davíð enn að fá að mæta á flokksþing Framsóknarflokksins?“ spyr nýr formaður.
Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, segist ekki þekkja neinn sem fékk boð á aðalfund Sósíalistaflokksins, sem fram fór um helgina. Fólk úr fyrri stjórn gagnrýnir að fundurinn hafi ekki verið auglýstur opinberlega en ekkert mátti finna um hann á vefsíðu eða samfélagsmiðlasíðum flokksins áður en hann fór fram.
„Fékk 21 félagi boð á þennan fund?“ skrifar Gunnar Smári í spjallhópinn Rauða þráðinn á Facebook. „Ég þekki engan í flokknum sem fékk boð á fundinn, sem hvergi var auglýstur. Þetta er farið að líta út eins og rán einhverrar klíku á eignum almenns félags. Kannski ætti frekar að kæra þetta til lögreglu en félagaskrár.“
Við færslu Gunnars Smára segjast flokksmenn ýmist hafa fengið fundarboð eða ekki, en af skjáskotum má ráða að boðað hafi verið til fundarins, sem fram fór á Norðurlandi 6. til 7. júní, 22. maí og ítrekun send fimm dögum síðar.
Sara Stef Hildardóttir, fyrrum stjórnarmaður, segir fundinn hafa verið haldinn með leynd, en í samtali við Vísi sagði hún hóp flokksfólks hyggjast kæra fundinn til Fyrirtækjaskrár og hugsanlega fara með málið lengra.
Nýkjörinn formaður flokksins, Jón Ferdínand Estherarson, segir hins vegar við Heimildina að aðalfundur hafi verið kynntur á félagsfundum flokksins og fundarboð sent í tölvupósti á alla félaga flokksins og sömuleiðis ítrekun. „Fundurinn var ekki leynilegri en svo að gervallt félagatalið fékk að vita af fundinum með löglegum og eðlilegum fyrirvara og allir áhugasamir félagar fengu kynningu líka á félagsfundum,“ segir hann.
„Eins og gefur að skilja og er öllum morgunaugljóst þá gengur það ekki upp að fólk sem býður sig fram gegn Sósíalistaflokknum með öðru framboði, gegnir trúnaðarstörfum fyrir framboð sem býður fram gegn Sósíalistaflokknum og með mjög opnum og alvarlegum hætti grefur undan flokknum, hendir flokknum út úr eigin húsnæði og vinnur með ráðum og dáðum og með opinberlega yfirlýstum hætti að því að granda Sósíalistaflokknum, að það fólk sé áfram félagar í flokknum,“ segir hann ennfremur í skriflegu svari til Heimildarinnar. „Það er augljós hagsmunaárekstur. Í öllum eðlilegum stjórnmálaflokkum gilda lög og reglur gegn slíku.“
Flokksmenn nú hjá VG og Miðflokki
Vísar hann þar í átök innan flokksins í byrjun sumars í fyrra þegar ný stjórn var kjörin og Gunnar Smári missti sæti sitt í stjórn. Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi flokksins og kjörinn pólitískur leiðtogi hans um skeið, bauð sig fram undir merkjum Vinstrisins til borgarstjórnar í vor.
Deilur stóðu einnig um félagið Vorstjörnuna, fjölmiðilinn Samstöðina og húsnæði flokksins við Bolholt 6, sem flokknum var vísað úr en hann leigir nú rými af MÍR, Menningartengslum Íslands og Rússlands, við Hverfisgötu.
„Er Þorgerður Katrín enn höfð með í ráðum á landsfundi Sjálfstæðisflokksins?“
„Svo stóð hún [Sanna] og Sara Hildardóttir fyrir þeim gjörningi að henda Sósíalistaflokknum út úr húsnæði sínu, mættu síðar á fund flokksins með öskurhávaða og stofnuðu loks mótframboð gegn flokknum,“ skrifar Jón Ferdínand. „Þætti einhverjum eðlilegt að Guðrún Hafsteinsdóttir myndi kæra landsfund Samfylkingarinnar ef hún fengi ekki að vera þátttakandi í honum? Ætti Sigmundur Davíð enn að fá að mæta á flokksþing Framsóknarflokksins? Er Þorgerður Katrín enn höfð með í ráðum á landsfundi Sjálfstæðisflokksins? Þá má nefna að meðal fyrrum félaga sem eru ekki lengur í félagatali Sósíalistaflokksins eru einstaklingar sem gegna virkum trúnaðarstörfum fyrir VG og einn starfandi þingmaður Miðflokksins.“
Hann hvetur fólk til að hætta árásum á starf Sósíalistaflokksins. „Við erum engir óvinir né andstæðingar, heldur samherjar í pólitískum skoðunum allra jafna, það er því bara innilega miður að þau tali í orði um samstöðu fyrir kosningar en hegði sér svo með allt öðrum hætti að þeim loknum. Sósíalistaflokkur Íslands óskar hins vegar Söru og Sönnu og þeirra hópi alls hins besta og velfarnaðar í sínum störfum fyrir Vor til Vinstri og Vinstrið,“ skrifar Jón Ferdínand.
Aldrei verið skráður í annan flokk
Skilaboð Jóns Ferdínands voru sömuleiðis birt sem skoðanapistill hjá Mannlíf í dag og deilir Gunnar Smári honum sömuleiðis í hópnum Rauði þráðurinn.
„Þarna kemur fram að nýr formaður Sósíalistaflokksins rak fólk úr flokknum án þess að hafa til þess nokkra heimild, sendi ekki fundarboð á aðra en þá félaga sem voru honum þóknanlegir,“ skrifar Gunnar Smári.
„Magnað að svona lið skuli bjóða sig fram til að vinna fyrir almenning“
„Hann segir að það sé jafn fráleitt að senda mér boð á aðalfund flokksins, þar sem ég hef verið skráður félagi frá upphafi og aldrei verið skráður í eða unnið fyrir annan flokk, og að boða Guðrúnu Hafsteinsdóttur á aðalfund Samfylkingarinnar. Magnað að svona lið skuli bjóða sig fram til að vinna fyrir almenning, tilbúið a sveigja allar reglur að eigin þörfum. Og svona líka ánægður með sig yfir þessu öllu, að springa úr monti.“