Frá árinu 2014 hafa þrjár mæður látist á máta sem skilgreina má sem mæðradauða ef farið er eftir skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, og hefur tíðni mæðradauða lækkað verulega á undanförnum 50 árum.
Að sögn sérfræðinga í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum á Landspítala er mæðradauði afar fátíður hér á landi, eða á við hin Norðurlöndin, og mun fátíðari en víðast hvar annars staðar í heiminum.
Lést í barnsburði
Í lok maímánaðar bárust þær harmfregnir að móðir hefði látist af barnsförum á Landspítalanum og vöknuðu í kjölfarið óhjákvæmilega spurningar meðal þjóðarinnar um það hversu tíð slík atvik væru hérlendis.
Söfnun hefur verið komið upp fyrir fjölskyldu hinnar látnu, sem ásamt nýfæddu barni sínu lætur eftir sig unnusta og barnsunga stjúpdóttur. Söfnunina má nálgast hér að neðan:
Reikningsnúmer: 0702-15-053445
Kennitala: 120494-2799
Alls sjö tilfelli mæðradauða á einum áratug
Til mæðradauða teljast samkvæmt skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar dauðsföll þungaðra kvenna, sem deyja á meðgöngu, í tengslum við barnsburð og allt að 43 dögum eftir að þungun lýkur, óháð meðgöngulengd og hvernig meðgöngu lýkur (fæðing, fósturlát, þungunarrof eða annað þungunarástand).
Beinn mæðradauði á sér stað þegar dánarorsök er nátengd þungun eða fæðingu, eða er afleiðing þungunarinnar á einhvern hátt (til dæmis blóðsegar, blæðing eftir fæðingu eða meðgöngueitrun).
Hins vegar getur mæðradauði líka verið óbeint tengdur þunguninni, t.d. þegar þungunin hefur átt þátt í að gera ótengt sjúkdómsástand konunnar verra.
Eins og áður segir er mæðradauði verulega fátíður hér á landi. Samkvæmt nýjustu skýrslu frá Fæðingaskrá urðu tvö andlát frá 2014 til 2023 sem töldust til beins mæðradauða og fimm tilfelli óbeins mæðradauða.
Hvert dauðsfall vegur mikið
Við túlkun á tíðni mæðradauða ber að hafa í huga að í fámennu samfélagi vegur hvert dauðsfall mikið, þrátt fyrir að jafnan séu tekin saman fleiri ár.
Á árunum 2014-2023 hafði meðaltíðni mæðradauða lækkað umtalsvert frá undanförnum árum og nam 7,0 tilfellum fyrir hverjar 100.000 fæðingar, en af 42.932 konum sem eignuðust lifandi fædd börn á árunum 2014-2023 létust þrjár konur af beinum eða óbeinum mæðradauða.
Bandaríkin reka lestina
Meðaltíðni mæðradauða á Íslandi er sambærileg nýjustu ritrýndu tölum um mæðradauða á hinum Norðurlöndunum þar sem tíðnin nam 7,2 fyrir hverjar 100.000 fæðingar á tímabilinu 2005-2013.
Í Bandaríkjunum er mæðradauði hins vegar ríflega tvöfalt algengari en á Norðurlöndunum, og nam tíðni hans árið 2024 17,9 andlátum fyrir hverjar 100.000 fæðingar sem er það hæsta sem mælist meðal hátekjulanda heimsins.
Vegna þess hve fáar fæðingar eiga sér stað á Íslandi ár hvert er erfitt að fá nákvæma mynd af tíðni mæðradauða án þess að skoða lengri tímabil, og þar sem tíðni mæðradauða fer lækkandi með hverjum áratuginum sem líður skilar sú aðferðafræði sér í því að tíðni mæðradauða kann að virðast hærri hér á landi en hún er í raun.

