Þetta staðfestir Bylgja Hrönn Baldursdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar. Greint var frá því í gær að árásinni, sem var lýst sem stórfelldri í dagbók lögreglu, væri komin á borð miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar.
Aðspurð hvort fórnarlamb árásarinnar sé á sjúkrahúsi segist Bylgja ekki vita „hvort hann sé enn á sjúkrahúsi“. Líðan hans sé þó „nokkuð góð“.
Lögreglan heldur spilunum ansi þétt að sér en að minnsta kosti einn er í haldi lögreglunnar vegna málsins og verður farið fram á gæsluvarðhald yfir viðkomandi.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.
Málið er í rannsókn hjá lögreglunni sem vildi ekki veita nánari upplýsingar um málið.
Greint var frá árásinni í dagbók lögreglu á þriðjudagsmorgun svo leiða má leiða líkur að því að árásin hafi orðið á milli klukkan fimm síðdegis á mánudag og klukkan fimm á þriðjudagsmorgun.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.