Fjögur þingmál sem lögð eru fram af þingmönnum stjórnarandstöðunnar eru á dagskrá þingfundar Alþingis nú í dag.
Útlit er fyrir að þingstörfum muni ljúka í dag og verður því fróðlegt að fylgjast með því hvort mál stjórnarandstöðunnar hljóti brautargengi.
Alls eru 22 mál á dagskrá þingfundarins og því ljóst að fjöldi atkvæðagreiðslna er fram undan.
Jarðakaup útlendinga takmörkuð
Þrjú lagafrumvörp stjórnarandstöðunnar eru á dagskrá þingfundarins sem og ein þingsályktunartillaga. Annarri umræðu er lokið um frumvörpin þrjú sem og annarri umræðu þingsályktunartillögunnar.
Þingsályktunartillagan er lögð fram af Höllu Hrund Logadóttur, þingmanni Framsóknarflokksins, og snýr að því að skipaður verði hópur sem vinna eigi að frumvarpi sem takmarki jarðarkaup erlendra aðila hér á landi.
Halla Hrund lagði tillöguna einnig fram á síðasta þingi en þá náði hún ekki framgangi.
Dreifing ösku gerð frjáls
Eitt frumvarpanna þriggja er nú lagt fram í áttunda skiptið en það kemur frá Bryndísi Haraldsdóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokksins.
Frumvarpið snýr að breytingum á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu og felur það í sér að dreifing ösku verði gerð frjáls. Verður það því aðeins heimilt en ekki skylt að koma duftkerum fyrir í grafarstæðum.
Einnig er útlit fyrir að frumvarp Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur, þingmanns Miðflokksins, um breytingar á umferðalögum verði samþykkt. Frumvarpið felur það í sér að gildistími ökuskírteina einstaklinga yfir 65 ára aldri verði lengdur. Nú þurfa 65 ára og eldri að endurnýja á fimm ára fresti, 70 ára a á fjögurra ára fresti, 71 árs á þriggja ára fresti, 72 ára á tveggja ára fresti og einstaklingar 80 ára og eldri ár hvert.
Með frumvarpinu er þó lagt til að einstaklingar sem hafa náð 60 ára aldri myndu þurfa að endurnýja skírteinið á 10 ára fresti, 80 ára á fimm ára fresti og einstaklingar 90 ára og eldri á tveggja ára fresti.
Afnám stimpilgjalds
Þriðja frumvarp stjórnarandstöðunnar sem er á dagskránni er frumvarp sem lagt var fram af Vilhjálmi Árnasyni, þáverandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins, sem felur í sér að stimpilgjald vegna kaupa einstaklinga á íbúðarhúsnæði verði afnumið.
Einstaklingum ber nú almennt að greiða 0,8% stimpilgjald vegna kaupa á íbúðarhúsnæði en þó er veittur helmingsafsláttur þegar um fyrstu kaup er að ræða.
Verði frumvarpið að lögum mun gjaldið falla alfarið niður vegna kaupa einstaklinga á íbúðarhúsnæði og lögbýlum og undanþágan verður ekki bundin við fyrstu kaup.
