Þar kemur fram að fólk eigi í vandræðum með að tengjast samfélagsmiðlinum bæði í símaappi og í tölvu. Þá virðist fólk eiga í erfiðleikum með að skrá sig inn í forritið.
Þá virðist áhrifa einnig gæta hjá Instagram, sem einnig er í eigu Meta, tæknirisa Marks Zuckerbergs.
Facebook hefur ekki gefið út útskýringar vegna málsins.