Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur tekið endanlega ákvörðun um afturköllun styrks sem var veittur til Feneyjatvíæringsins í myndlist fyrir tímabilið 2025–2028.
Styrkurinn hljóðaði upp á 2 milljónir evra, eða tæpar 300 milljónir íslenskra króna.
Fjárframlagið úr vösum evrópskra skattgreiðenda
Frá þessu greinir Henna Virkkunen, sem fer fyrir málefnum er varða lýðræði innan Framkvæmdastjórn ESB, á samfélagsmiðlinum X.
Þar sagði hún að menning í Evrópu ætti að standa vörð um lýðræðisleg gildi, enda sé fjárframlagið til tvíæringsins greitt úr vösum evrópskra skattgreiðenda. Slík gildi séu ekki virt í Rússlandi.
Rússar höfðu ekki sýnt á tvíæringnum eftir að stríðið í Úkraínu hófst árið 2022 en snéru til baka í þjóðarskála sinn í ár. Ákvörðunin mætti mikilli andstöðu eins og við var að búast.
Báðu um skýringar á þátttöku Rússa
Framkvæmdastjórn ESB tilkynnti að hún hygðist afturkalla styrkinn í apríl, eftir að stjórnandi Feneyjatvíæringsins Pietrangelo Buttafuoco staðfesti að rússneski skálinn fengi að opna á ný.
Framkvæmdastjórnin gaf skipuleggjendum tvíæringsins 30 daga frest til að draga ákvörðun sína um þátttöku Rússa til baka eða færa rök fyrir því að stöðva ætti afturköllunarferlið.
Þá bað ESB um formlegar skýringar á því hvers vegna Rússum væri heimiluð þátttaka á tvíæringnum.
Dómnefnd sagði af sér
Skipuleggjendur tvíæringsins létu engu að síður verða af opnun rússneska skálans, þrátt fyrir að opnun hans gæti einungis verið takmörkuð þar sem rússnesku sendinefndinni láðist að tryggja nauðsynleg leyfi til að halda opinbera viðburði.
Alþjóðleg dómnefnd tvíæringsins sagði af sér í lok apríl og sagðist ekki geta tekið til greina þjóðarskála ríkja þar sem þjóðarleiðtogar hafa verið sakaðir um glæpi gegn mannkyni af alþjóðlega sakamáladómstólnum, ICC.
Engin lönd voru nefnd á nafn en dómstóllinn hefur meðal annars gefið út handtökutilskipanir á hendur Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra Ísraels og Vladimírs Pútíns forseta Rússlands.