Saklaus spurning frá erlendum ferðamanni hefur vakið athygli á Reddit-síðunni Visiting Iceland síðustu daga. Spurningin minnir okkur Íslendinga á að eitt það sjálfsagðasta í okkar augum getur verið algjört menningarsjokk fyrir aðra.
Ferðamaðurinn lýsti því að hann væri á leiðinni til Íslands í skólaferð á næstunni og spurði hvort nemendur þyrftu í alvöru að fara naktir í sturtu áður en farið væri í Secret Lagoon þar sem hópurinn hyggst fara.
„Venjulega myndi ég ekki hafa neitt á móti því,“ skrifaði viðkomandi, „en ég held að enginn í bekknum mínum yrði sérstaklega þægilegur með þetta,“ bætti hann við.
Spurningin fékk mikil viðbrögð.
Margir svöruðu af mikilli einlægni og bentu á að þetta væri einfaldlega hluti af íslenskri sundlaugamenningu. Einn benti á að þetta væri raunar ekki nein spurning um menningu heldur fyrst og fremst spurning um hreinlæti. Á Íslandi sé lögð rík áhersla á hreinlæti í heitum pottum og laugum – og því sé beinlínis ætlast til þess að fólk þvoi sér almennilega áður en það fer ofan í.
Sum svörin voru kurteis og útskýrandi. Önnur öllu beinskeyttari.
„Wash your butt, or don’t go,“ skrifaði einn notandi stutt og laggott og er varla þörf á íslenskri þýðingu á þeirri athugasemd.
Annar sagði að enginn væri í raun að fylgjast með öðrum í klefanum. „Það er öllum alveg sama hvernig þú lítur út þarna niðri,” sagði annar.
Nokkrir bentu líka á að nekt væri almennt minna tabú á Norðurlöndum en víða annars staðar, sérstaklega í Bandaríkjunum, en margir þátttakendur í umræðunni virtust koma þaðan.
„Kannski er þetta bara gott tækifæri til að kenna krökkum að nekt sé ekki sjálfkrafa kynferðisleg,“ skrifaði einn notandi.
Þráðurinn þróaðist fljótt úr praktískri ferðaspurningu yfir í stærri umræðu um líkamsímynd, menningarmun og hvernig mismunandi samfélög líta á nekt.