„Er þá atkvæði greitt þér atkvæði greitt Miðflokknum?“
Líflegar samræður átti sér stað í Tjarnarbíó á milli oddvita Framsóknar og Viðreisnar í gærkvöldi. Einar Þorsteinsson og Björg Magnúsdóttir mættust þar í oddvitasamtölum Heimildarinnar, en Björg var aðstoðarmaður Einars þegar hann var borgarstjóri í Reykjavík.
Skilaboð til Miðflokksins
Bæði tóku þau afgerandi afstöðu gegn málflutningi varaformanns Miðflokksins um regnbogafána í grunnskólum. „Ég held að þegar Snorri er að tala svona þá er svo augljóst að hann hefur aldrei farið inn í skólastofnun og horft framan í börnin og horft á samfélagið hvernig það er. Hann hefur aldrei farið í hinsegin félagsmiðstöðina þangað sem börn leita skjóls vegna þess að þeim líður illa annars staðar og njóta stuðning hvert af öðru,“ sagði Einar.
Þegar kennari er með hálsband í hinsegum litum þá sé það til að sýna barni að það njóti viðurkenningar. Það geti verið haldreipi fyrir þau sem upplifa sig utangarðs.
„Er þá atkvæði greitt þér atkvæði greitt Miðflokknum?“ …