Vart varð við annan skjálfta á höfuðborgarsvæðinu nú um klukkan 16.17, um tveimur og hálfum tíma eftir að nokkuð kröftugur skjálfti skók suðvesturhorn landsins.
Samkvæmt mælingum Veðurstofu var hann 3,8 að stærð.
Rúmlega sjö hundruð skjálftar hafa mælst frá því hrina hófst á Mosfellsheiði, vestur af Húsmúla, upp úr klukkan sjö í gærmorgun.
Í tilkynningu frá Veðurstofu segir að búast megi við frekari eftirskjálftum á svæðinu næstu daga.
Gögn hennar eru sögð benda til þess að þetta séu sniðgengisskjálftar, á norður/suður-misgengi á brotabelti Suðurlands og Reykjanesskaga.