Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum segir nýja vatnslögn til Vestmannaeyja enn ekki hafa verið prófaða. Tjón varð á lögninni í byrjun ágúst og enn óljóst hvort hún sé nothæf. Íris segir skýrt hver beri ábyrgð á tjóninu.
Lögninni er ekki ætlað að dreifa vatni í Vestmannaeyjabæ, heldur vera til vara ef eitthvað kemur fyrir neysluvatnslögnina. Vestmannaeyjabær bíður enn eftir lokaskýrslu vegna tjónsins. Íris segir alveg óumdeilt að lögnin hafi skemmst við útlagningu og því skýrt hvar ábyrgðin liggur.
Hún skemmist í útlagningu hjá Subsea 7 þannig að það er ekkert vafamál hvar lögnin skemmist og hvenær. Hún skemmdist ekki um borð í skipinu eins og voru einhverjar fréttir um. Hún skemmist þegar verið er að leggja hann út en við höfum ekki fengið lokaskýrsluna um nákvæmlega hvað gerðist og hvernig. En ábyrgðin er klárlega hjá útlagningaraðilanum.
Átti að prófa lögnina í gær
Ákveðið var að leggja lögnina þrátt fyrir skemmdirnar og sjá hvort hún bæri vatn. Þrýstiprófanir á vatnslögninni eru fyrirhugaðar strax og veður leyfir.
„Það átti að reyna að gera það í gær til að athuga hvort það sé möguleiki að koma einhverju í vatni í gegnum hana en það var bilunin í tækjabúnaði sem varð til þess að það var ekki hægt að klára þá prófun.“
Vilja að ríkið borgi
Hún segir Vestmannaeyjabæ halda innviðaráðuneytinu upplýstu um öll skref málsins. Spurð hvort stjórnvöld muni auka framlög til verkefnisins segir Íris bæjaryfirvöld í virku samtali við ráðuneytið.
„Við erum bara í þessu virka samtali um það að við teljum að ríkið eigi að greiða fyrir almannavarnir tengdar Vestmannaeyjum eins og almannavarnir annars staðar.“
Bæjarstjórnin í Vestmannaeyjum hefur sagt lögnina falla undir almannavarnir og vill að ríkið greiði fyrir hana. Eina vatnslögnin til Vestmannaeyja laskaðist í nóvember 2023 þegar akkeri togara rann út og lenti á henni.
Ákveðið að leggja aðra lögn, eins og þá sem skemmdist. Ríkið greiðir 800 milljónir, sem er helmingurinn af kostnaði við smíði lagnarinnar, en svo bætist við kostnaður við að leggja hana.