Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi fjölda bíla í útkall í Elliðaárdal upp úr klukkan eitt í dag. Tilkynning hafði borist um reyk við Toppstöðina. Lögregla sendi einnig bíla á staðinn.
Þegar slökkvilið kom á staðinn virtist sem ekki væri jafn mikil hætta á ferðum og óttast var í fyrstu.
Eldur kviknaði í gömlu raftæki inni í húsinu. Eldurinn reyndist ekki mikill og slökkviliðsmenn voru fljótir að slökkva hann. Þeir tóku síðan til við að reykræsta húsið.
Fréttin hefur verið uppfærð.