Eldur kom upp í geymslu í íbúðarhúsnæði í Árbænum. Samkvæmt varðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins voru allar slökkvistöðvar upphaflega sendar á vettvang, en fljótlega var flestum einingum snúið við og aðeins ein stöð hélt áfram útkallinu.
Eldurinn hefur nú verið slökktur. Engar upplýsingar hafa borist um slys á fólki vegna eldsins og enn liggur ekki fyrir hversu umfangsmikið tjónið er.
Fréttin hefur verið uppfærð.