Til stendur að banna öllum börnum undir sextán ára aldri að vera á samfélagsmiðlum en einnig er lagt til að eldri unglingar, sextán og sautján ára, sæti ákveðnum takmörkunum. Það myndi þýða að öpp á borð við Facebook, TikTok og Instagram yrðu lokuð þessum aldurshópi frá miðnætti og fram til klukkan sex á morgnana.
Gagnrýnendur tillögunnar eru þó á því margir hverjir að hún gangi ekki nægilega langt og að lítið mál sé fyrir krakkana að breyta stillingum í símum sínum til þess að komast hjá banninu. Í nýrri skýrslu sem kom út í gær er vitnað í rannsókn sem yfirvöld létu gera þar sem hópi unglinga var bannað að vera á slíkum miðlum frá klukkan níu á kvöldin og svefnmynstur þeirra borið saman við annan hóp sem sætti engum slíkum takmörkunum.
Í skýrslunni er því haldið fram að markverðar breytingar til góðs hafi verið á svefni þeirra sem sættu takmörkunum.