Slökkvilið eru loks að ná tökum á mannskæðustu gróðureldum á Spáni í áraraðir. Tólf hafa fundist látin og eyðileggingin er mikil.
Lucinda Curtois kom til Spánar með eiginmanni sínum og tveimur börnum á fimmtudag í sumarfrí sem breyttist snögglega í martröð.
„Við komum niður fjallið og bjuggumst ekki við því að rekast á eldvegg. Það var mjög ógnvekjandi og hugurinn fór á mikið flug, hvernig kæmist ég aftur gegnum þorpið án þess að brenna því eldarnir skutust upp fjallið meðfram þessum vegi,“ segir hún.
Fjölskyldan dvaldi í þúsund manna bænum Bédar. Tólf fórust í eldunum, þeirra á meðal breskir ríkisborgarar.
„Við misstum mjög nána fjölskylduvini. Þeir fóru fótgangandi að heiman, ég veit ekki hvers vegna, líklega af því að vegurinn hafði lokast. Þau bjuggu í sveitinni utan við þorpið og fundust því miður látin,“ segir Curtois.
Í morgun fór loks að komast skriður á slökkvistörf, hagstæðari veðurskilyrði hafa skipt sköpum í baráttunni við eldana. Loftið er rakara í dag og minni vindur.
Ljóst er að tjón á eignum fólks er mikið. Um 1500 þurftu að flýja heimili sín. Eldarnir eru með þeim mannskæðustu í áraraðir á Spáni. Sjö manns er enn saknað. Þar sem ekki hefur tekist að bera kennsl á öll líkin gætu sum þeirra sem er saknað verið á meðal hinna látnu.