Frá þessu er greint í yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar.
Lögreglu bárust einnig tilkynningar um þjófnað úr matvöruverslun og um að aðila í leyfisleysi á athafnasvæði fyrirtækis. Bæði mál eru í rannsókn.
Þá var nokkur fjöldi ökumanna stöðvaður í umferðinni.
Fimm reyndust undir áhrifum og þrír sektaðir fyrir akstur án ökuréttinda. Þá var einn stöðvaður fyrir að aka á negldum dekkjum og einn sviptur til bráðabirgða fyrir að aka á 112 km/klst þar sem hámarkshraði er 50 km/klst.
Veist þú meira um málið? Við tökum á móti ábendingum af öllu tagi á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Veist þú meira um málið? Við tökum á móti ábendingum af öllu tagi á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.