Einstaklega sjarmerandi íbúð á tveimur hæðum í þríbýlishúsi í hjarta Þingholtanna er til sölu. Eignin stendur við Grundarstíg í miðbæ Reykjavíkur og er skráð 115,7 fermetrar, þar af er neðri hæðin 71 fermetrar og sú efri 44,7 fermetrar, en hún er að hluta til undir súð.Eignin státar af 3 svölum með fallegu útsýni til allra átta. Þær stærstu, sem snúa í vestur, eru 14 fm og að hluta yfirbyggðar að norðanverðu.
Einstaklega sjarmerandi eign í hjarta Þingholtanna á sölu