Greint var frá því á vef RÚV í gær að málið hafi fyrst farið til ákærusviðs fyrir átta mánuðum. Þá voru fleiri með réttarstöðu sakbornings, þar með talið matráður og Félagsstofnun stúdenta, sem rekur leikskólann. Í frétt RÚV segir að Árni Bergur Sigurðsson, settur sviðstjóri ákærusviðs, vilji ekki gefa upp hver er nú með stöðu sakbornings. Þá segir hann ekki liggja fyrir hvort að ákæra verði gefin út.
Alls greindust 49 einstaklingar með shiga-toxin-myndandi E. coli-gerla, þar af 45 börn á Mánagarði, einn starfsmaður, eitt barn starfsmanns sem borðaði á leikskólanum þennan dag og tveir fjölskyldumeðlimir smitaðs barns. Börnin reyndust hafa borðað hakk og spagettí eða veganrétt í hádeginu 17. október. Við skoðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur kom í ljós að meðferð matvælanna hefði ekki verið ákjósanleg.
Tólf börn voru lögð inn á legudeild Barnaspítala Hringsins, fimm börn inn á gjörgæslu og tvö þurftu skilunarmeðferð vegna nýrnabilunar. Eitt barn í það minnsta þurfti að vera í öndunarvél vegna veikinda. Einkenni barnanna voru allt frá vægum niðurgangi upp í „svæsinn blóðugan niðurgang“ og alvarleg veikindi með nýrnabilun, að því er segir í skýrslunni.
Foreldrar stúlku sem lá þungt haldin á Barnaspítalanum fóru fram á að málið yrði rannsakað af lögreglunni. Lögmaður þeirra sagði í kröfu sem lögð var fram hjá lögreglu að gáleysi starfsmanna hefði verið svo stórkostlegt að það jaðraði við ásetning.