Íbúar í Eyja- og Miklaholtshreppi, sem náð höfðu sextán ára aldri, tóku þátt í skoðanakönnun samhliða sveitarstjórnarkosningum á laugardag. Íbúar voru spurðir hvort hreppurinn ætti að hefja sameiningarviðræður og þá við hverja.
Alls tóku 53 þátt í könnuninni. 42 svöruðu því játandi að hreppurinn ætti að hefja sameiningarviðræður. Aðeins einn sagði nei. Sjö lýstu ekki skoðun.
Mjög misjafnt er hverjum íbúar vilja sameinast.
Átján nefndu Stykkishólm. Næstvinsælust var hugmyndin um að sameinast Snæfellsbæ, sjö lýstu vilja til þess. Borgarbyggð kom næst, sex nefndu hana.
Fólk var líka spurt hvort það sæi Snæfellsnes allt fyrir sér sem eitt sveitarfélag í náinni framtíð. 37 svöruðu játandi en einn neitandi.