Nýjustu langtímaspár gefa tilefni til bjartsýni fyrir júlímánuð, að mati veðurfræðingsins Einars Sveinbjörnssonar. Þótt óvissa sé enn um úrkomu, benda spár til þess að hlýtt gæti orðið á landinu í júlí.
Einar segir frá þessu á vefsíðu sinni, Bliku.
Í hverjum mánuði lítur hann á svokallaðar veðurlagsspár sem safnað er saman á einn stað, en þær eru reiknaðar frá níu stórum reiknisetrum um heim allan.
„Oft eru þessar spár út og suður og fátt sem er á hönd festandi. Nú ber hins vegar betur í veiði og allgott samræmi er á okkar slóðum um meginlínu þeirra,” segir Einar sem skoðar fyrst spá Reiknimiðstöðvar evrópskra veðurstofa, ECMWF og síðan sams konar kort sem segja má að sé meðalspá allra níu reiknisetranna.
„Á korti yfir frávik loftþrýstings má sjá hæðarfrávik vestur af Bretlandseyjum og suður af Íslandi, það sem meira er að það birtist einnig á safnspáinn (multi) á svipuðum slóðum. Frávik lík þessum hafa sést í nokkur skipti í júlí. Nærtækast er júlí 2021 og einnig má sjá að 1984 var svipað upp á teningnum. Má finna fleiri sem eru áþekkir í þrýstifarinu,“ segir hann.
Rifjar hann upp að árið 1984 hafi verið hlýtt og sólríkt norðan- og austanlands, en sunnanlands og vestan hins vegar óþurrkasamt.
Hann rifjar svo upp að árið 2021 hafi júlímánuður verið mjög hlýr og þurr, sérstaklega á Norður- og Austurlandi þar sem sló í methita. Um allt land hafi svo verið tiltölulega þurrt.
„Og á Akureyri mældist hitinn hvorki meira né minna en 14,3°C og hafa aldrei mæst eins margar sólskinsstundir í júlí þar og þá. Mánuðurinn var jafnframt þurr um mest allt land,“ segir hann sem gefur ágætis vonir um að það verði í það minnsta þurrt í júlí.
Einar segir að kort ECMWF fyrir úrkomufrávikin sýni einmitt líkur á þurru veðri, það er að samanlagt úrkomumagn hafni í lægri þriðjungi.

„Sjáum að guli liturinn nær yfir Austurland og áhrif hærri loftþrýstings koma vel fram í spá um litla úrkomu s.s. á Bretlandseyjum. Safnspáin nær hins vegar engu útslagi fyrir úrkomufrávik hér við land.“
Einar segir að saman megi túlka þrýstifrávikin og tengsl við úrkomu þannig að hér á landi verði meira um suðvestan- og vestanáttir og minna um vinda á milli norðurs og austurs.
Eins og landsmenn vita geta veðurspár verið óútreiknanlegar og spáin fyrir júlímánuð er aðeins vísbending um hvað kann að gerast. Það er þó aldrei að vita nema júlímánuður verði í það minnsta hlýr og þurr.