Egill Helgason fjölmiðlamaður telur nær öruggt að nei-sinnar fari með sigur af hólmi í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið í dag.Hann telur jafnframt að úrslitunum muni fylgja pólitískt uppgjör og að strax verði kallað eftir afsögnum innan ríkisstjórnarinnar.Egill fjallar um kosningarnar í færslu á Facebook í morgun og segist allt frá því að boðað var til þjóðaratkvæðagreiðslunnar hafa talið augljóst að nei-ið myndi vinna.
Egill spáir pólitísku uppgjöri: „Kröfur um afsögn munu heyrast strax annað kvöld“