Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason segist fullur kvíða við innkaup. Hann segir á Facebook-síðu sinni:
„Ástandið er þannig að maður er fullur af kvíða þegar maður þarf að fara í búð – og finnur til örvæntingar þegar maður borgar fyrir vörurnar.“
Tilefni færslunnar er frétt RÚV þess efnis að Íslendingar greiði að meðaltali 55% meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins. Kemur þetta fram í greiningu Samkeppniseftirlitsins. Kemur þar einnig fram að eingöngu í Sviss er matvara dýrari en á Íslandi, eða 58% yfir meðaltali ESB-landa.
Miklar umræður eru undir færslu Egils sem meðal annars snúast um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu hér á landi í lok ágúst, um áframhald aðildarviðræðna við ESB. Meðal þeirra sem taka til máls er Bragi Halldórsson, sem skrifar:
„Við erum búinn að ná þeim vafasama áfanga að Reykjavík er dýrasta borg í heimi og velti Osló úr því sæti. Þessar tvær borgir ásamt þremur svissneskum borgum hafa barist um toppsætið í fjölda mörg ár en mig minnir að við höfum ekki náð gullinu áður, bara silfrinu.“